Niðurstöður eftir fyrstu fyrirlögn

SKORA (Stúlkur, knattspyrna og rannsókn á atgervi) er rannsóknarverkefni sem skoðar þroska, heilsu og frammistöðu 12 ára knattspyrnustúlkna á Íslandi. Markmiðið fyrstu gagnasöfnunar var að byggja upp þekkingu um þennan mikilvæga aldur, þegar miklar líkamlegar og andlegar breytingar eiga sér stað, og skapa betri grunn fyrir þjálfun og uppbyggingu í kvennaknattspyrnu.

Í fyrstu gagnasöfnun tóku þátt stúlkur frá 10 félögum á höfuðborgarsvæðinu. Næsta gangasöfnun mun fara fram vorið 2026 en þá er stúlkurnar á 14. aldursári

Hvað var mælt – og af hverju?

Til að fá heildstæða mynd voru skoðaðir bæði líkamlegir og andlegir þættir, meðal annars:

  • Líkamssamsetning og beinþétti (með DXA)
  • Líffræðilegur þroski (beinþroski)
  • Hraði, stökk og þol (40 m sprettur, lóðrétt stökk, lendingarpróf, Yo-Yo IR1 hlaupapróf)
  • Knattrak
  • Jafnvægi
  • Andleg og félagsleg líðan
  • Svefn- og lífsvenjur

Markmiðið var að skoða hvernig þessir þættir tengjast hver öðrum og getustigi í knattspyrnu og fá betri skilning á því hvað einkennir þennan aldurshóp.

Búið er að gefa út tvær greinar eftir fyrstu fyrirlögn rannsóknarinnar. 

Associations Between Bone Age, Body Composition and Physical Performance in Icelandic 12‐Year‐Old Female Soccer Players
Höfundar: Rúna Stefánsdóttir, Hilde Gundersen, Sigurður Benediktsson, Mona Vestbøstad, Erlingur Jóhannsson og Vaka Rögnvaldsdóttir
European Journal of Sport Science, 2025.

Asymmetries in lean mass, balance, and stability in 12-year-old female soccer (football) players: a cross-sectional study
Rún Stefánsdóttir, Hekla D. Guðmundsdóttir, Erlingur Jóhannsson og Vaka Rögnvaldsdóttir
Frontiers in Sports and Active Living, 2025.

Einnig hafa fjórir meistaranemar skrifað upp úr gögnum rannsóknarinnar og má sjá verkefnin hér: 

Fjölnir Bjarnason, M.Sc. ritgerð: Afkastamælingar á íslenskum knattspyrnustúlkum: Hversu vel spáir spretthraði, loftháð geta, lóðrétt stökk og knattrak fyrir um getustig 12 ára stúlkna á knattspyrnuvellinum?

Bjarki Reyr Tryggvason, M.Sc. ritgerð: Hefur líkamssamsetning ungra kvenna í knattspyrnu áhrif á frammistöðu í knattraki og sprett- og þolprófum?

Lárus Sigurðsson, M.Ed. ritgerð: Andleg líðan 12 ára knattspyrnustúlkna á Íslandi.

Adna Mesetovic, M.Sc. ritgerð: Svefnmunstur íslenskra 12 ára stúlkna og tengsl við getu í knattspyrnu.