Rúna Sif Stefánsdóttir, Ársæll Már Arnarsson og Vaka Rögnvaldsdóttir við Menntavísindasvið Háskóla Íslands voru ein af þeim sem hlutu styrk frá RANNÍS fyrir rannsóknina, Langtímarannsókn á andlegri heilsu, félagslegri vellíðan, líkamlegum þroska og afkastagetu ungra knattspyrnustúlkna (SKORA rannsóknin).
Alls bárust 414 gildar umsóknir í Rannsóknasjóð og voru 70 þeirra styrktar eða 17% umsókna. Rannsóknasjóður er leiðandi samkeppnissjóður hér á landi og styrkir sjóðurinn verkefni á öllum sviðum vísinda, allt frá styrkjum til doktorsnema til öndvegisstyrkja. Rannsóknasjóður heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Rannsóknin er langtímarannsókn á andlegri heilsu, félagslegri vellíðan, líkamlegum þroska og afkastagetu ungra knattspyrnustúlkna. Markmiðið er að fylgja íslenskum knattspyrnustúlkum frá 12 til 16 ára aldurs og skoða hvernig líkamlegur þroski, andleg líðan, félagsleg tengsl og frammistaða þróast saman á þessum mikilvæga þroskatíma.
Grunnmælingar voru framkvæmdar við 12 ára aldur og með styrknum verður unnt að endurtaka mælingar við 14 og 16 ára aldur. Með því fæst heildstæð mynd af þróun stúlknanna yfir tíma, frekar en einangruð staða á einu tímapunkti.
Í rannsókninni eru skoðaðir bæði líkamlegir og andlegir þættir. Þar má nefna líkamssamsetningu og beinþroska, hraða, styrk, stökkgetu, þol og jafnvægi, auk svefns, hreyfingar, sjálfstrausts, kvíða, líkamsímyndar og félagslegs stuðnings. Einnig er fylgst með meiðslum og brottfalli úr knattspyrnu til að varpa ljósi á hvaða þættir tengjast áframhaldandi þátttöku og heilbrigðri þróun í íþróttum.
Rannsóknin er sérstaklega mikilvæg þar sem unglingsárin eru viðkvæmt tímabil í lífi stúlkna. Andleg vanlíðan hefur aukist á þessum aldri og brottfall úr íþróttum er algengt. Á sama tíma eru rannsóknir á stúlkum í íþróttum hlutfallslega fáar samanborið við rannsóknir á drengjum sem undirstrikar þörfina fyrir markvissa og sértæka þekkingu á aðstæðum stúlkna.
Markmiðið er að byggja upp traustan þekkingargrunn sem getur nýst þjálfurum, foreldrum, félögum og stefnumótendum við að skapa umhverfi þar sem stúlkur fá að dafna, þróast og halda áfram í íþróttum til lengri tíma.