Um SKORA verkefnið

Stúlkur, knattspyrna og rannsókn á atgervi (SKORA) er rannsóknarverkefni við Háskóla Íslands sem fjallar um frammistöðu, líðan og þátttöku stúlkna í knattspyrnu á unglingsárum. Verkefnið snýst í grunninn um að skilja betur hvað mótar íþróttaferil stelpna á þessum aldri, bæði líkamlega, andlega og félagslega, og hvernig þessir þættir þróast og tengjast hvor öðrum yfir tíma.

Í rannsókninni er fylgst með sama hópi stúlkna yfir nokkur ár. Fyrsti áfanginn hófst vorið 2024 þegar safnað var gögnum frá um 200 stúlkum, þá um 12 ára (fæddar 2012), þar sem meðal annars var mæld líkamleg afkastageta (sprettur, stökkkraftur og þol), líkamsamsetning, þroski og andleg og félagsleg líðan. Vorið 2026, er verið að fylgja þessum hópi eftir þegar þær eru orðnar 14 ára, sem gefur einstakt tækifæri til að skoða hvernig breytingar á unglingsárum tengjast áframhaldandi þátttöku í íþróttum og breytingum á afkastagetu og atgervi.
Unglingsárin eru tímabil mikilla líkamlegra, andlegra og félagslegra breytinga, þar sem kynþroski hefur veruleg áhrif á bæði líkamsþroska og líðan. Á þessum árum getur aukinn kvíði, neikvæð líkamsímynd, meiðsli og álag og aukinn samanburður við aðra haft áhrif á upplifun stúlkna í íþróttum og jafnvel leitt til þess að þær hætta. Þótt íþróttaiðkun geti haft mjög jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan, getur hún líka falið í sér áskoranir, sérstaklega þegar kröfur um árangur og pressa aukast.
Það sem gerir SKORA sérstakt er að verkefnið skoðar þetta allt í samhengi — hvernig andleg og félagsleg líðan, líkamleg frammistaða, þroski og umhverfi tengjast þáttum eins og meiðslum og brotthvarfi úr íþróttum. Markmiðið er að varpa ljósi á þessa þróun á þessu tímabili.
Í heildina snýst SKORA því um að byggja upp betri þekkingu á upplifun og þróun ungra stúlkna í fótbolta, með það að markmiði að styðja við heilsu, vellíðan og áframhaldandi þátttöku þeirra í íþróttum til framtíðar. 
Mælingar

Í rannsókninni verða framkvæmdar ýmsar mælingar á atgervi eins og þrek, snerpa, hraði, kraftur og færni. Sérstök áhersla verður á að skoða líkamssamsetningu, kynþroska, beinþroska stúlkna og áhrif tíðahrings á tíðni meiðsla og brottfall stúlkna úr knattspyrnu. Þessir þættir verða einnig tengdir við andlega líðan (frammistöðukvíða, sjálfsímynd og fl.), líkamlega heilsu, þjálfun og aðra lífstílsþætti. Fjöldi æfinga, brottfall, tíðni íþróttameiðsla og almennir lifnaðarhættir verða einnig skoðað með spurningalista.