Gagnasöfnun hafin og gengur vel

KRI_SKORA_240404_004

 

Gagnasöfnun verkefnisins er hafin og gengur vel. Stúlkurnar eru áhugasamar og samstarf rannsakenda, þátttakenda, liða, þjálfara og foreldra gengur vonum framar.

Við minnum á að hægt er að lesa betur um verkefnið hér á síðunni (um verkefnið) og einnig er hægt að sjá hvaða mælingar við erum gera undir um verkefnið en þar er undirsíða sem heitir þátttaka. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við okkur á skora.rannsokn@gmail.com

Við þökkum kærlega fyrir góðu móttökurnar hingað til og hlökkum til að koma og mæla í fleiri félögum!

Bestu kveðjur frá rannsóknarteymi SKORA

Fræðslukvöld SKORA og KSÍ

Síðustu áratugi hefur kvenkyns iðkendum fjölgað gríðarlega í heimi íþróttanna og mikill uppgangur er í kvennaknattspyrnu. Þessi aukning hefur hvatt til frekari rannsókna um frammistöðufærni kvenna en rannsóknir hérlendis og erlendis hafa nánast eingöngu einblínt á afkastagetu karla í knattspyrnu.

Stúlkur, Knattspyrna og Rannsókn á Atgervi (SKORA) er rannsókn framkvæmd af hópi vísindafólks frá Háskóla Íslands í samvinnu við rannsakendur í Noregi og Svíþjóð.  Markmið rannsóknarinnar er að skoða líkamlegt atgervi knattspyrnustúlkna, andlega og félagslega líðan, áhrif tíðahrings á tíðni meiðsla og brottfall stúlkna úr knattspyrnu á Íslandi.

Í rannsókninni verða framkvæmdar ýmsar mælingar á þreki, snerpu, hraða, krafti og færni. Sérstök áhersla verður lögð á að skoða líkamssamsetningu, kynþroska, beinþroska stúlkna og brottfall stúlkna úr knattspyrnu. Þessir þættir verða einnig tengdir við andlega líðan (frammistöðukvíða, sjálfsímynd og fl.), líkamlega heilsu, þjálfun og aðra lífstílsþætti sem verða skoðaðir með spurningalista.

Í tilefni af þessu verkefni hefur SKORA í samstarfi við KSÍ ákveðið að halda fræðslukvöld miðvikudaginn 10. apríl kl: 19:30 á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ, Laugardalsvelli.

Dagskrá kvöldsins:

19:30 SKORA verkefnið og heimasíðan formlega opnuð – Dr. Vaka Rögnvaldsdóttir og Dr. Rúna Sif Stefánsdóttir lektorar í íþrótta- og heilsufræði, HÍ og verkefnastjórar rannsóknarinnar.

19:45 Líkamleg þjálfun – Hildur Kristín Sveinsdóttir, BSc sjúkraþjálfun

20:00 Hugræn þjálfun í íþróttum – Helgi Valur Pálsson MSc Íþróttasálfræði

20:15 Spurningar og spjall

20:30 Formlegri dagskrá lokið

VERIÐ ÖLL VELKOMIN!


Athugið að fræðslukvöldið verður tekið upp og sett á heimasíðu SKORA verkefnisins – skora.hi.is fyrir áhugasama!