Gagnasöfnun í SKORA-rannsókninni er nú lokið og gekk hún mjög vel. Þátttakendur tóku virkan þátt og sýndu rannsókninni mikinn áhuga og viljum við færa öllum stúlkunum, foreldrum, knattspyrnufélögunum og öðrum sem komu að gagnasöfnuninni okkar bestu þakkir fyrir frábært samstarf.
Næsti áfangi verkefnisins er nú þegar hafinn. Unnið er að úrvinnslu og greiningu gagna sem safnað var í þessari lotu og verða þau meðal annars nýtt til að skoða breytingar á heilsu, líðan og líkamlegri þróun þátttakenda yfir tíma.
Á næstu misserum mun rannsóknarhópurinn jafnframt stækka. Stefnt er að því að tveir doktorsnemar komi inn í SKORA-verkefnið og vinni að frekari greiningu gagna og rannsóknum tengdum verkefninu.
Það eru því spennandi tímar framundan í SKORA og hlökkum við til að deila frekari fréttum og niðurstöðum eftir því sem vinnunni vindur fram.